Fjöruslóg (Scytosiphon lomentaria)
Útlit
Nafnið fjöruslóg er dregið af því að þörungurinn minnir nokkuð á fiskslóg. Vex oft í knippum, nokkrar plöntur saman. Fjöruslóg er einær vorþörungur, hverfur oftast þegar líður á sumarið eða réttara sagt, verður að smásæjum, hrúðurkenndum þörungi. Hann getur orðið 30-40 cm langt og um 5 mm á þykkt.
Útbreiðsla
Vex í pollum um alla fjöruna eða á steinum, aðallega um hana neðanverða. Vex bæði á skjólsælum og brimasömum stöðum og finnst í þangfjörum víða um land.