Rataskel (Hiatella arctica)
Útlit
Hvítleit skel sem er breytileg að lögun en oftast frekar aflöng. Hvít að innan. Nefið er töluvert framan við miðju. Á skeljunum eru oft óreglulegar blaðkenndar fellingar. Stærð skelja er 3−4 cm. Hýði er gulbrúnt.
Fæða og æxlun
Lifir á lífrænum ögnum og smásæjum þörungum, sem skelin síar úr sjó í umhverfi skeljarinnar. Ytri frjóvgun, lirfa (fyrst trochophore og síðar veliger) þroskast fljótlega eftir frjóvgun, lirfan leitar uppi hentugt búsvæði og sest þar að og þroskast í skeldýr.
Útbreiðsla
Lifir í grýttum fjörum umhverfis landið allt frá fjöruborði og niður á djúpsævi. Geta lifað í holum í bergi og borað sig inn í mjúkt berg. Hefur víða útbreiðslu allt frá Barentshafi , við norðanvert Atlantshaf beggja vegna, við Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku.
Nytjar eru engar.