Bergbúi (Zirfaea crispata)
Útlit
Kúptar skeljar sem eru sterklegar hvítar að lit. Dæld um miðja skel og nef framan við miðja skel. Brett upp á skel á afturenda. Mismunandi mynstur á aftur- og framhluta skeljanna. Báðir enda gapa. Lengd skelja er um 6 cm.
Fæða og æxlun
Lifir á lífrænum ögnum og smásæjum þörungum, sem skelin síar úr sjó í umhverfi skeljarinnar. Ytri frjóvgun, lirfa (fyrst trochophore og síðar veliger) þroskast fljótlega eftir frjóvgun, lirfan leitar uppi hentugt búsvæði og sest þar að og þroskast í skeldýr.
Útbreiðsla
Grefur sig ofan í set eða í mjúkt berg. Víða við Íslands á litlu dýpi, 0−5 m. Finnst í Norður-Atlantshafi, frá Kólaskaga og allt suður til Biskajaflóa og í Norður-Ameríku frá Lawrenceflóa og suður til Norður-Karólínu.
Nytjar eru engar.