Brimkló (Ceramium virgatum)

Útlit

Brimklóin er fremur lítill, greinóttur rauðþörungur, sem getur orðið um 30 cm langur. Greinarnar eru liðskiptar og enda í kló.

Útbreiðsla

Brimkló vex neðarlega í grýttum fjörum og klapparfjörum, á steinum eða á öðrum stærri þörungum.

Brimklóin finnst út um allan heim, í öllum heimsálfum og heimshöfum. Það eru ekki margar íslenskar lífverur sem finnast jafn víða.

Útbreiðsla