Flatormar – Platyhelminthes, fylking

Þessar lífverur eru líklega þeir hryggleysingjar sem fæstir Íslendingar þekkja. Nafn fylkingarinnar á latínu og íslensku er lýsandi fyrir útlit þessara orma, allir eru þeir flatir og þunnir, þeir eru ekki liðskiptir eins og liðormarnir, t.d. burstaormarnir eru. Þetta eru dýr sem eru tvíhliða og hafa ekkert líkamshol, taugakerfi er einfalt, þeir eru án blóðrásar og öndunarkerfis. Öndun á sér stað með flæði (sveim) í gegnum yfirborð húðar, það er því lífsnauðsynlegt fyrir þessar lífverur að vera flatar og þunnar þannig að efnaskipti geti átt sér stað í líkamanum. Þeir eru yfirleitt með görn, ekkert úrgangslosunarop, hjá sumum flatormum sem eru sníklar vantar görn.

Til eru um og yfir 26.000 tegundir sem teljast til flatorma og lifa sumir flatormar í sjó, aðrir í fersku vatni. Margir flatormar eru sníklar og sem dæmi má nefna bandorma. Þar á meðal er sullaveikisbandormurinn sem var landlægur á Íslandi, en er það enn í flestum öðrum löndum.

Myndin sýnir dýr sem finnst neðst í grýttum fjörum. Það er úr flokknum Rhabditophra (áður Turbellaria), tegund óviss. Þetta er flatvaxið, örþunnt dýr sem líður hægt áfram og finnst í grýttum fjörum. Lengd 15 mm.